Elísabet Ýr

genialität

27.05.2007 10:31:50 / Beta rokk!

siðasta færsla þessarar síðu

Þessi síða virkar ekki nógu vel fyrir apple tölvur :( þannig ég er komin með nýja

http://elisabet-yr.bloggar.is

sorglegt.. ég sem var nýkomin upp í 10.000;)

þannig endilega skrifa í gestó og kommenta á þessari nýju…
..það eru komnar DK myndir inná hana.

Ég ætla að enda þessa síðu með fyrsta blogginu mínu:

17.08.2005 22:39:16[Beta rokk!]
Nei! halló

Geðveikt að vera kominn með blogg síðu Ég var að eignast naggrís seinasta fimmtudag. Hann heitir Elvis og er algör dúlla, Kisu líkar geðveikt vel við hann. Það er engin íþróttæfing ótrulega fúlt. Ég ætlaði að segja öllum að ég ætti naggrís.

Bæjó

HAHA! Iss.. ég hef greinilega ekkert breyst...


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 19:24:10 / Beta rokk!

.

Hver verður númer

 

10.000?


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 22:18:53 / Beta rokk!

DK

Dagur 1

 Fórum öll saman í bíl út á völl. Ég þurfti að kveðja bleiku töskuna :( ...það var eitthver vitleysa með innritunina hjá Brynjari því hann hét allt í einu Brynja Guðjónsdóttir :haha:HAHA! Svo týndi Gréta miðanum sínum8| en það reddaðist alveg. Þegar við vorum að leggja af stað í vélina sáum við Garðar Thor Cortez! ..svaka sætur!Svo var ekkert merkilegt að gerast í flugvélinni.. jú, Brynjar eignaðist vini ..svo kom smá ókyrrð í loftið ...sem maður fann ekki fyrir.   Þegar við komum til DK  borðuðum við á vellinum ..ekki ég, sem var í megrun. Sú megrun entist ekki neitt. Svo tókum við morðingja-taxa á gistihúsið.  

Dagur 2 

Fórum á Experimentarium og Brynjar fór í fýlu. Svo eftir safnið fórum við á strikið, alltaf jafn gaman þar auðvitað! Ég náði að kaupa mér alveg tonn. Svo fórum við í mat til Sigurjónar Sighvatssonar. Fengum pizzur... og fórum síðan í veggja-tennis hjá honum. Hann var samt ekki heima. Svo fórum við á gistihúsið. 

Dagur 3

 Tókum strætó á Ráðhústorgið og fórum í Ripley’s belive it or not, Guinnes safnið, Exploratorium og Vaxmyndasafnið. Síðan tókum við lest til Helsingør, skoðuðum kastalann þar og Holgeir Danska.. og sáðum leðurblöku í kjallaranum. Síðan fórum við með lest í Klampenborg þar sem Bakken tívolíið er. Við, Unnur og Ingunn fórum í ógeðslegasta tæki sem til er! Ojojoj 

Nóttin milli dags 3 og 4 

Ég og Ingunn læddumst og settum brúnkukrem á strákana ..en þeir vöknuðu. Við vissum það samt ekki ...svo komu þeir inn til okkar og settu svitalyktareyði fyrir neðan nefið á Ingunni ..en gátu ekki sett á mig því ég svaf eins og kræklingur út í horni. 

Dagur 4

 Byrjuðum á að fara í siglingu frá Nýhöfn, sáum fullt af húsum og fullt af fólki að hlaupa í Kaupmannahafnarmaraþoninu. Síðan fórum við í Tivoli..  geggjað stuð! Daði fór í fýlu af því við vildum ekki fara strax í 3. skipti í rússibanann. Mér var samt heavy illt í hausnum ..en leið og ég reyndi að hætta að hugsa um það þá svona byrjaði það að lagast.  

Dagur 5 

Fórum heim...


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 20:07:40 / Beta rokk!

*

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ INGUNN!!!

  
 

Jiii! Minn! Svo gleymdum við barasta að syngja fyrir hana í hádeginu!

En ég er búin að lofa að syngja einsöng ..hátt og snjallt í flugvélinni.  Það var hörkudanssýning í dag.. við dönsuðum djæf, cha cha cha, hip hop dansinn, eitthvað meira ooooog ROKK!  Í þeim dansi fengu áhorfendur að sjá ýmsa rassa ...sérstaklega minn.   Svo eftir danssýninguna voru tónleikar ...ég var síðust. Gerði nokkrar mannlegar vitleysur, haha! Stærsta vitleysan var geðveikt fyndið! ..ég var sjálf að deyja úr hlátri
það var sko þannig að fyrst fann ég ekki rétta bassann... svo loksins fann ég hann ..hehe..  þá var ég búin að týna réttu nótunum hinumegin..  en það var samt bara fyndið.
  En ég er bara á fullu að pakka ...mamma er óð að setja föt af mér í þvottavélina.
og ég er að fara á morgun til fyrrverandi landráðenda ...ég er samt ekki eins spennt og ætti að vera :S. Ég var rosaspennt fyrir tvem vikum en það hefur dvínað síðan og núna er svona eins og ég sé ekki að fatta að ég sé að fara burtu frá mömmu minni...
 Ég er samt að fara...

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 19:22:07 / Beta rokk!

Zzz...

iPodinn minn er búinn að vera týndur í sirka 3 vikur... 
og ég var alltaf að hugsa “oh.. GGB er örugglega með hann”
þannig var það í þessar þrjár vikur.. 
..eeen svo byrjaði ég að örvænta... af því ég er að fara til DK og þarf að hafa pottinn með í flugvélina! Í dag ákvað ég að fara að leita fyrir alvöru *lol*  (ég viðurkenni að ég er ekki áhyggjumanneskja, allavega ekki um hluti) og viti menn, ég fann tónhlöðuna!  Hún var staðsett ofan í prjónadótinu mínu ...sem ég hef ekki snert í þrjár vikur! Hehe...  ..dóttir handavinnukennarans er ekki duglegasti handavinnunemandinn.. SKANDALL!  En ég er allavega búin að finna mína kæru tónhlöðu.. Í gærkveldi fór ég í Júróvision/afmælis-partý hjá Ingunni, ofsastuð!  Gallaðar tortillur og fínheit...  þær voru samt voðagóðar!
...tjah..  Serbía var með allt í lagi lag... en mér fannst að Þýskaland hafi átt að vinna.. eða Svíþjóð ...eða Frakkland.

Hey! Jess! Það eru komin lömb! :D (ég er alltaf fyrst með allt!) Úff..  Aron er svo sætur!  Og ég er næstum búin að kenna honum að veifa! :D ..hann bara nennir ekki að lyfta hendinni.

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 17:58:43 / Beta rokk!

Wievel Uhr ist es?

Jæja... það hefur nú ekki mikið gerst síðustu vikuna... nema samrænd próf Svo er allur skólinn að fara í ferðalag á morgun... rosastuð! 
Sigurrós komu líka í skólann í dag.. fóru í sund..
þeir eru svo mikil krútt!!!
Og eftir akkurat viku er danssýning og tónleikar...  ég verð seinust (þessi bestu eru hafðir seinastir sko *montmont*) og ég á að spila svakalegt lag  nei...  lög! Spila sko tvö lög! Já sjitt! Það eru bara 300 á Íslandi að læra á harmonikku! Og ég er eina í öllum Snæfellsbæ! Það er ekkert smá!  Og svo er ég að fara .. og þá er enginn eftir! Við harmonikkufólk erum að deyja út! Við verðum að standa saman og fá fleiri í lið með okkur....  HAHA!! Ok ... þetta er að fara úr böndunum hjá mér..

 Seinustu tónleikar, áður en ég fór í vaxmeðferðina..

Já.. ég var að tala um tónleikana og danssýninguna...
allavega...  daginn eftir förum við til Danmerkur! Jeii!

Svo komum við frá Danmörku.. þá verður Aron kominn í pössun í sirka viku held ég á meðan SolBjartur eru í U.S.A að kaupa handa mér fartölvu! Vúúhú!

En hey! Júrívision á morgun! ...ég hef ekki heyrt helminginn af lögunum

hver man ekki eftir þessari?
Þetta eru allavega engar smá BRULLUR!


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 15:45:48 / Beta rokk!

Dead as a Dodo

Bwahaha! Sjá bara hvað ég get verið down... litla ofvirka sveitastelpan

”jæja... þá er þetta skítapróf búið!

En þetta var leiðinlegt próf... ég ætla ekki að fara í Samrænt próf í Íslensku aftur! 
Enda þarf ég þess ekki!”
 Þetta var samt ekkert skemmtilegasta próf sem ég hef farið í... skemmtilegasta próf sem ég hef farið í er stærðfræðiprófið í 1. bekk ...þá fékk ég 10,0!  Og síðan hef ég ekki fengið 10,0 í stærðfræði...  og svo er það næstskemmtilegasta prófið ..þá verð ég bara að segja að það sé Þjóðfélagsfræðiprófið í dag hjá Hildi.. megagott próf! Ánægð með spurningavalið! ..ég á samt eftir að fá einkunn útúr því...  ég vona að hún verði góð...  sko einkunnin ekki Hildur! ..Hildur er svo nice

Heyrðu! ....ég var búin að gleyma að ég er búin að yfirstíga minn versta ótta!

Ég er búin að kaupa kjól fyrir útskriftina! Og skó!  Jiii ég er svo ánægð með þetta!
hérna er hann:

 

er ég ekki fín?? :D  ég er allavega heavy ánægð með hann!

Svo er Aron litli búinn að vera í pössun alla helgina.. hann er að fara núna:(


Jeii svo erum við að fara til DK eftir 10 daga.. ekki núna á fimmtudaginn heldur næsta:haha:




» 8 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 21:47:12 / Beta rokk!

Eiga nemendur að hafa meiri áhrif í grunnskólum landsins?

jæja... þá er þetta skítapróf búið!

Ég fékk mars í prófinu8) en ég geymdi það þangað til ég fór heim! :D

En þetta var leiðinlegt próf... ég ætla ekki að fara í Samrænt próf í Íslensku aftur! 
Enda þarf ég þess ekki!:D:D

Svo er það bara að taka ensku og dönsku og strax eftir dönskuprófið að skella sér suður:D
..og reyna að kaupa kjól! :S


ég hefði bara átt að láta mömmu kaupa þennan í 30.000,-
nei haha!!  ég hefði ekki viljað gera henni það!

en hérna er smá treat fyrir þá sem eiga eftir að fara í samfélagsfræðiprófið!


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 16:36:59 / Beta rokk!

tutti frutti

Þá er bara vika í samrændu ..sjitt!

En í dag var ég eina úr 7.-10. bekk ..rosastuð! Ég ákvað sko að vera í skólanum að læra án kennara í staðinn fyrir að fara til Kjarvals og vera útnefnd varðliði umhverfisins..
Þetta var ágætis ákvörðun.. ég átti gott spjall við samrænda köttinn, perlaði með litlu krökkunum og fékk pizzu og appelsín! Jei... En ég var samt eiginlega bara á kafi í lærdómi. Rosaskemmtilegur dagur!

Pabbi minn fór til Þýskalands í gær... í svona buissness ferð. Svona alveg eins og Jón Ásgeir! Sem BTW var að kaupa sér íbúð í New York! Og viti menn.. ég ætlaði akkurat að eiga íbúð í New York þegar ég yrði stór! Þannig hér er komin góð ástæða til að giftast Jóni, kallinum. En já ég var að tala um pabba. Hann er eitthvað fastur í Kaupmannahöfn akkurat núna ..en þetta reddast allt!

ú!.. svo erum við að fara til Danmerkur eftir 22 daga! Þá get ég notað flottu, bleiku ferðatöskukna mína!
Ég er svo kúl!

En mig langar svo í aðeins síðara hár og stórar krullur eða eitthvað! ..ég held að ég ætli að fá mér permanent í haust eða bara fyrir jól..
  ég er allavega að vinna í því að safna hári!

 það á samt ekki að vera 
                                                   alveg svona...
kannski svona :S
eða svona :D

Nei! ég held að ég sé búin að finna þetta:
  HAHA!!!

Já.. ég er að renna nokkrum myndum inná netið.. þær eru kannski komnar


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 22:07:40 / Beta rokk!

*

læra-lærði-lærðum-lært





Sjáið Unni! ->  

» 6 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 20:59:23 / Beta rokk!

Tanzvergnügen

Ég er að fara á árshátíð! Jeii! 
og ég ætla að vera í einhverjum af þessum fötum:

  

ég bara get ekki valið!!

Já, ég er semsagt að fara á árshátíð hjá GSNB á miðvikudaginn. Svaka matur og svo svona DJ ball... ég man ómögulega hvað DJ-inn heitir... úpps!

Ég var að hugsa um í dag að ég er ekki búin að kaupa mér útskriftarkjól! Og það er svo mikið að gera í maí að kannski hef ég ekki tíma til þess! Jújú.. ég hlít að geta hliðrað til...  en ég er samt svo hrædd um að það verði bara keyptur kjóll í flýti :(  en ég læt það nú ekki gerast!

Svo var ég einhverntímann að um daginn að ákveða framhaldsskólaárin mín...
..og það var svo mikið sem ég þarf að gera! Sko, ég þarf að fara í magadans, salsa, box og eitthvað fleira.. og svo leið og ég verð 18 þá ætla ég beint á svona súludans æfingar! (ég held alveg örugglega að maður þurfi að verða orðinn 18) og svo er það auðvitað skólinn.. má ekki gleyma honum! Já, svo fann ég líka sundlaug rétt hjá heimilinu mínu.. nema ég þarf alltaf að labba þvert yfir morðingja/nauðgara-skóginn... sem á víst að vera voða kósý útivistarsvæði!

Ég var að laga til í gömlu dóti frá mér áðan... fann ég þá ekki dagbók síðan í skólabúðunum í 7. bekk! Haha!

...ég var einhverntímann saklaus.

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 18:50:02 / Beta rokk!

Til sölu

ZEN NEEON 2
mp3 spilari

Hann er voðafínn! það er hægt að setja myndir, video og auðvitað tónlist inná hann!
Ekki láta þennan framhjá ykkur fara! Ég allavega myndi selja hann á MJÖG lágu verði!
Hann er alveg eins og nýr! Það fylgir allt upprunarlega dótið með honum! Eginlega ekkert notaður! Fer svakalega vel í vasa ...eða veski! ...svo eru kannski einhverjar sem geyma allt í brjóstarhöldurunum! ;)

Myndin sýnir rétta stærð.


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 19:29:57 / Beta rokk!

It's in your eyes, I can tell what you're thinking

Það er oft erfitt að hafa stjórn á skapi sínu, en það borgar sig.
                                       

Jú, jú.. þetta var málshátturinn minn þetta árið. Fjölskyldumeðlimum finnst hann eiga vel við en ég er ekki alveg sammála. :$ :lol:

Það voru hörkusamstarfsdagar í gær. Við erum alveg greinilega besta körfuboltalið sem finnst! :haha: Ég skoraði samt alveg tvær körfur, úff það var nú meira en ég bjóst við af mér! Og svo föttuðum við í morgun að samtals skoruðum við bara þrjár körfur! HAHA! 
  En oh! Ég þoldi ekki sumar gellur sem notuðu spikið á sér til að ráðast á mann! ...samt þegar ég hugsa um það eftirá þá er það frekar fyndið! Nei, í alvöru! Ef maður pælir í það, þá er ógeðslega fyndið að einhver gella hlaupi að manni á fullri ferð og slengir spikinu utan í mann! Hörkugella greinilega!
 

  Svo á ballinu vorum ég, Anna og Karen með okkar hrikalega fagra atriði!
Ballið var líka nokkuð skemmtilegt! ..já! sjitt! Hljómborðsleikarinn var á einhverju! :O Hann var allur sveittur, með bauga, skrítnar hreyfingar og starði einhvert með galopin augu! FREAK! Já heyrðu.. ég  veit ekki hvað á að tala meira um ballið.

Ég verð að hemja mig þegar ég hlæ! Og að hverju ég hlæ! ..t.d núna má ég ekki sjá bróður hennar Unnar, án þess að hlæja, af því hann sagði einhverntímann “kæfubjörn” þegar Kiddi á Ökrum var nýbúinn að segja “kæru börn” yfir hópinn. ..Í alvöru talað! Ég verð að fara að vinna í þessu!

En finnst ykkur Geir H. Haarde ekki mikið krútt??


                                      


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 22:58:03 / Beta rokk!

*

Mamma mín er orðin 27 ára!

 

Ég fór á ballið í gær.. það var stuð! Sumir ónefndir aðilar voru þvílíkt að reyna að vera cool á því.. 8) En annars var þetta stuð! æji.. ég gleymdi að gera chicken-move! :$


Þetta getur maður sko kallað almennilega færslu!



» 5 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 20:06:55 / Beta rokk!

chicken

Mér langar á ball á sunnudaginn! ..hver vill koma með?? :haha:



Verðið að læra þetta fyrir ballið!!!

Ég er búin að fá mér bleika ferðatösku fyrir Danmerkurferðina! :)
 
En annars hef ég bara verið heima hjá mér..  litla fjölskyldan úr Kóngsbakka er hérna.
Svo voru líka samtals 11 gestir í kaffitímanum í dag og þá á eftir að telja fjölskylduna með!
En mamma er orðinn svaka spennt að kaupa útskriftarkjól fyrir mig.. hún er meira að segja spenntari en ég! Byrjuð að draga mig inn í fullt af kjólabúðum og eitthvað..

Svo er eiginlega alveg pottþétt að ég eignist Apple MacBook Pro! Jeii!
og fæ hana sennilega miklu ódýrari því Solveig og Bjartur eru að fara til U.S.A!
En ég er ekki alveg búin að ákveða mig.. en ég held samt að ég kaupi mér! :haha:

Það er voða lítið að gerast svosem... sumt fólk er byrjað að hunsa mig.. hehe


Jóhannes á afmæli í dag! *klapp-klapp* ;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11